Færsluflokkur: Tónlist

Grétar Rafn, Grétar Rafn og Grétar Rafn

Ég bíð eftir þeim degi þar sem ég les frétt á mbl.is um Bolton þar sem ekki er minnst á Grétar Rafn (sem verður sennilega aldrei)

Annars magnaður árangur hjá Bolton!


mbl.is 10 leikmenn Bolton náðu að jafna metin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm?

William Gallas átti fáránlega tæklingu og Arsenal skora ....

Hvað rugl er þetta??

"Enska knattspyrnusambandið tekur ekki framfyrir hendurnar á dómurum í atvikum sem þessum."

 

Hann á skilið að fara í bann fyrir þetta!


mbl.is Engin eftirmál af brotinu hjá Gallas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á ekki aukatekið orð...

Á hverjum einasta morgni kveiki ég á tölvunni og netinu, og fer á www.teamtalk.com og skoða fótboltafréttir. Dagurinn byrjar ekki án þess. En þetta er held ég í fyrsta skipti í langan tíma sem mér líður alveg virkilega illa við að lesa fótboltafréttir svona snemma morguns!

Aldrei í lífi mínu vildi ég sjá Ferguson segja af sér og kvíði ég fyrir þegar sá dagur rennur upp. En einhvern daginn verður hann orðinn of gamall fyrir þetta.

 Ég trúi því bara ekki að stuðningsmenn United ætli að standa saman og biðja hann um að segja af sér .... til þess eins að mótmæla eigendum

Ef að Ferguson segir af sér vegna þessa .. þá á ég eftir að fella tár


mbl.is Skora á Ferguson að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á þetta skilið!

Ótrúlegt að reyna að verja þetta

Nr 1: Adebayor hleypur þvert yfir völlinn að stuðningsmönnum Arsenal til að fagna, sem hljómar mjög saklaust en þannig er mál með vexti að einn öryggisvörður þurfti að fara á sjúkrahús bara við það að reyna að halda Arsenal-aðdáendum frá því að komst inná völlinn, sem er alvarlegt á sinn hátt! (einnig ætti Adebayor að þakka fyrir það þeir hafi náð að halda fólkinu frá því að komast inná völlinn, annars væri hann ekki heill heilsu í dag)

Nr 2: Adebayor steig alls ekki ofaná Van Persie heldur lét hann fótinn flakka í andlitið á honum þegar þeir voru báðir liggjandi, og það stórsá á andliti Persie (ég sá ekki betur en að þetta hafi verið viljaverk)

 

Hann á þetta bann svo innilega skilið og vont að kalla Adebayor "atvinnumann" í augnablikinu


mbl.is City mótmælir ákærunni á hendur Adebayor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl og bull!!

Það kemur fram bæði á teamtalk.com og manutd.com að FIFA kannist ekki við þetta mál og þetta sé algjör misskilningur.´

Ég er gjörsamlega kominn með uppí kok af því að íslenskir íþróttafréttafjölmiðlar þurfa alltaf að hirða ALLAR sínar fréttir af SLÚÐURSÍÐUM!!!


mbl.is Man.Utd líka hótað FIFA-banni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl!

Fyrst og fremst kemur ekkert í ljós í þessu myndbandi HVENÆR það var tekið , það gæti vel verið að þetta hafi verið tekið upp fyrir viku og fengnir leikarar í þetta

Er ekki kominn tími til að leyfa manninum að hvíla í friði?


mbl.is Jackson lifandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

R.I.P

Þrátt fyrir allt sem Jackson hefur lent í og hefur þurft að þola var hann, er hann og mun alltaf vera konungur poppsins.

Mikill missir fyrir tónlistarheiminn og sorgaratburður.

Tónlist hans mun lifa eins lengi og jörðin mun svífa!


mbl.is Samtal við neyðarlínu vegna Jacksons birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður draumur

Er ekki bara málið að kaupa Villa og David Silva saman?

Punga út 60 millum , það yrði magnað, djöfull verða Púllarar svekktir


mbl.is United í baráttuna um Villa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spenntur!

Ekki má gleyma því að árið 2007 og 2008 sá Rick Rubin einnig um að pródúsera nýjustu plötu Metallica "Death Magnetic" sem er alveg stórkostleg plata.

Ég held bara að kenningin sé sú að það sem Rick Rubin kemur nálægt...það verður meistaraverk. Án efa besti og eftirsóttasti pródúser í heiminum í dag og er að fara að sjá um að pródúsera nýja plötu hjá einni af bestu hljómsveitum í heiminum í dag

Þetta verður maaagnað!!

Gaman að segja frá því að ástæðan fyrir því að platan með U2 kemur svona seint er að Metallica stálu Rubin frá U2 ... enda voru U2 ekkert sáttir við það , en Metallica platan er búin og U2 næst

Ég bíð spenntur

Ég sagði U2 svoldið oft í síðustu 3 setningum....jæja...áfram U2!!!


mbl.is Ný skífa frá U2 væntanleg í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er erfitt

Coldplay eru gjörsamlega búnir að grafa sína gröf með því að gera þetta en maður veit svosem aldrei hvort að um tilviljun sé að ræða eða ekki

Mörg mál hefur komið svona upp en aðallega samt hjá minni böndum en þar sem Coldplay er svona vinsæl og stór þá er þetta mjög barnalegt að stela svona áberandi , ég held hreinlega að þetta sé ekki tilviljun að mínu mati vegna þess að lagið er svo skugggalega líkt og melódían nááákvæmlega eins

Það verður gaman að sjá hvor vinni málið Coldplay eða Satriani

Ég held með Satriani í þessu!

Viva La Vida! 


mbl.is Coldplay vísar ásökunum Satriani á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Dagur Björnsson
Dagur Björnsson
20 ára drengur frá Borgarfirði Eystra, staðsettur í RVK og stunda nám við Fjölmiðlafræði í Tækniskóla Íslands, ég hef mikinn áhuga á fótbolta og öðrum menningarlegum sviðum, dyggur aðdáandi Manchester United. Ég segi það sem mér sýnist!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 138

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband