Ég á ekki aukatekið orð...

Á hverjum einasta morgni kveiki ég á tölvunni og netinu, og fer á www.teamtalk.com og skoða fótboltafréttir. Dagurinn byrjar ekki án þess. En þetta er held ég í fyrsta skipti í langan tíma sem mér líður alveg virkilega illa við að lesa fótboltafréttir svona snemma morguns!

Aldrei í lífi mínu vildi ég sjá Ferguson segja af sér og kvíði ég fyrir þegar sá dagur rennur upp. En einhvern daginn verður hann orðinn of gamall fyrir þetta.

 Ég trúi því bara ekki að stuðningsmenn United ætli að standa saman og biðja hann um að segja af sér .... til þess eins að mótmæla eigendum

Ef að Ferguson segir af sér vegna þessa .. þá á ég eftir að fella tár


mbl.is Skora á Ferguson að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrr frýs í Helvíti.

Óli Prik (IP-tala skráð) 18.1.2010 kl. 11:18

2 Smámynd: Dagur Björnsson

Ég hef engar áhyggjur af því svosem að hann segi af sér ... bara leiðinlegt að stuðningsmenn séu að biðja hann um það!

Dagur Björnsson, 18.1.2010 kl. 12:39

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Skiljið þið ekki þessa frétt?

Þetta Glazer pakk hlýtur að hafa verið í námi hjá Björgólfshyskinu.

Sveinn Elías Hansson, 18.1.2010 kl. 21:51

4 identicon

Ferguson mun ekki segja af sér og allra síst ef að einhverjir eru að þrýsta á um slíkt. Við United-fans getum því verið alveg pollrólegir út þetta tímabil. Hins vegar er víst samningur United og Ferguson að renna út eftir þetta tímabil og bendir ýmislegt til þess að karlinn sé að fara að segja þetta gott eftir 24.ár hjá United. Ef að verður þá er það því ekki fyrr en í haust sem við getum farið að hafa áhyggjur af framtíðinni.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dagur Björnsson
Dagur Björnsson
20 ára drengur frá Borgarfirði Eystra, staðsettur í RVK og stunda nám við Fjölmiðlafræði í Tækniskóla Íslands, ég hef mikinn áhuga á fótbolta og öðrum menningarlegum sviðum, dyggur aðdáandi Manchester United. Ég segi það sem mér sýnist!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband